Eruð þið með?

SGS hefur skorað á sveitarfélög landsins að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika. Rauðmerkt sveitarfélög hafa svarað kallinu, munu halda öllum gjaldskrárhækkunum innan 2,5% og hvetja önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama. Gulmerkt sveitarfélög miða aðhaldið við hluta af gjaldskrám sínum. Við reyndum þá leið 2024 og hún dugir ekki til. Ef samningar eiga að halda er ekki hægt að stíga skrefið til hálfs. Kortið verður uppfært eftir því sem fleiri svör berast.